Gerningaveður (Spellstorm)

Forgarður Helvítis

Við erum eldingin
úr hvössu auga himinins
sem kveikir elda
Rödd okkar er
reiði þrumunnar
sem skelfir hjörtun
Andi okkar
er ofsi veðursins
sem molar steininn


Höfuðáttirnar
eiga sér upphaf
okkur í brjósti
Náttúra kúgunar
vekur gerningaveður
til höfuðs hásætum
gegn höfðingjum

Tracker

All lyrics are property and copyright of their owners. All lyrics provided for educational purposes only.